Sápan á Öresundinu........

Saturday, October 14, 2006

Grímur er gulur.....

Litla krílið mitt er búinn að vera frekar gulur og latur. Hann hefur bara sofið síðan hann fæddist en hjúkkan sem kom heim fannst hann vera frekar mikið gulur og bað mig um að fara á spítalan og athuga hann. Erum núna búin að vera með hann í blóðprufum og hann er rétt undir mörkum að þurfa að fara í ljós, sem betur fer. En svo er hann ekki enn búinn að ná fæðingarþyngdinni sinni, hefur bara lést pínu enn hann á að vera búinn að ná henni núna. En ég er alveg með nóg mjólk en hann er bara frekar latur að drekka, þannig að nú er bara að reyna að halda honum við efnið og kitla hann meðan hann drekkur svo hann sofni ekki um leið.

Til dæmis í nótt vaknaði hann ekkert til að drekka sem hann bara má eiginlega ekki svona ungur. Ég fékk alveg nett hjartaáfall í morgun þegar ég vakanaði klukkan átta og hann ekki vaknaður og ég hafði síðast gefið honum um miðnætti.....
En þetta voru svona helstu fréttir af honum Grími...
|

Tuesday, October 10, 2006

4 manna fjölskylda......

Ef einhver hefur verið að reyna að hringja í mig eða senda mér sms og ég ekki svarað tilbaka þá er það vegna þess að skjárinn á símanum mínum er ónýtur. Frekar óheppilegur tími nú þar sem allir eru að senda manni hamingjuóskir og svona. Hrafnhildur var að tala við ömmu sína í Kwickly um þarsíðustu helgi og missti síman í gólfið og skjárinn brotnaði. Get ekki séð nein númer eða sms eða hver hringir......

Grímur litli er bara algjört æði, sem og stóra systirin auðvitað (bannað að skija útundan) Hann er nánast búin að sofa síðan hann fæddist nema núna síðustu tvær nætur er minn búinn að taka upp á því að vaka og vilja bara brjóst nánast á hálftíma til klukkutíma fresti til svona 4 og svo sefur hann til morguns...hann bara rétt rumskar til að drekka og sefur svo bara allan daginn:)
Hrafnhildur er voða dugleg og stendur sig þvílíkt vel sem stóra systir, enn sem komið er allavega:) Man ekki meir í bili.......
|

Thursday, October 05, 2006

Grímur Arnarson

Jæja þá er víst ekki annað hægt en að blogga núna:) Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar. Drengurinn, sem by the way er komin með nafnið Grímur er bara alveg yndislegur. Hrafnhildur enn sem komið er stendur sig eins og hetja og er í þessum töluðum orðum á leiðinni í leikskólann frekar stolt með mynd af sér að halda á litla bróðir:)

Ég var nú búin að skrifa þetta inn á barnalandssíðuna hennar Hrafnhildar en ég get svo sem alveg sett þetta hérna líka. Var bara að elda lasagna á miðvikudagskvöldið og skellti því inn í ofn um 7, hálf átta. lagðist aðeins upp í rúm á meðan og svo um átta leytið var maturinn komin á borðið og ég stóð upp og fann þá legvatnið byrja að leka. Get ekki sagt að ég hafi borðað mikin kvöldmat, aðallega út af spenningi.

Byrjaði að fá væga verki í kjölfarið, Örn dreif Hrafnhildi í pössun til Bergþóru vinkonu sinnar og ég byrjaði að finna til dót á meðan til að taka með á spítalann, gleymdi nú samt húfu og yfirhöfn á drenginn sem kom heim með sokk á hausnum í staðinn......Hringdum á leigubíl og vorum mætt upp á spítala um 9 leytið, var þá komin með ansi harðar hríðar og hélt ég myndi deyja þegar ljósmóðirinn sagði að útvíkkunin væri bara 3, tveim mínútum seinna og einni hríð var hún hins vegar orðin 9. Rétt fyrir klukkan 10 fæddist svo drengurinn. Allt gekk eins og í sögu og hann var það sem kallast á dönsku stjernekigger eða stjörnukíkir, sem þýðir að andlitið snéri upp en ekki niður og þær sögðu að þetta hefði gengið ennþá betur ef hann hefði snúið rétt, sem mér finnst frekar ótrúlegt þar sem þetta hefði ekki getað gengið betur:) Hann var allur út í fósturfitu og það var eins og honum hefði verið dýft ofan í kremdollu greyinu, gat ekki opnað augum fyrr en ég þurrkaði það mesta frá augunum.

Mældist svo 3968 gr. og 55 cm. alveg tilbúin með langar neglur og allt, þrátt fyrir að hafa komið 15 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag. Frábært að þurfa ekki að bíða lengur enda var ég orðin ansi stór og þreytt.....
Jæja nóg í bili, þetta var fæðingarsagan í stuttu máli. Myndir má finna á http://barnaland.mbl.is/barn/13993/
|
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com