Sápan á Öresundinu........

Saturday, April 29, 2006

Tveir dagar í næsta skóladag.....

Ég er svo ekki að nenna skólanum akkurat í augnablikinu, kanski af því að það styttist í próf og ég veit að ég á að vera að læra. Er komin í einhvern sumarfrí fílíng og bara nenni ekki að læra.

Svo þegar langþráðar helgar loksins renna upp þá er ég ekki alveg að geta notið þeirra því ég er stanslaust með í maganum yfir mánudeginum sem nálgast óðum......svo loks þegar þessi mánudagur rennur upp þá skil ég bara ekkert í sjálfri mér, því það er bara fínt í skólanum og ég uppfull af orku fyrir komandi viku, svo þegar líða fer á vikuna, þá fer ég að bíða eftir helginni og sama sagan endurtekur sig.......Það er nú meira hvað maður getur verið vitlaus:)
|

Friday, April 28, 2006

Já ég bara nennti ekki að bíða eftir að Örn myndi laga gamla bloggið þannig að ég bara geri nýtt:)
Á föstudaginn eftir viku ætla ég að halda upp á afmælið mitt, og ef þið kæru kollegivinkonur lesið þetta þá er ykkur boðið. Ætla bara að bjóða stelpum því að ég held að íbúðin höndli það ekki alveg ef makar ætluðu að frekjast með.
Nánari tímastening kemur seinna. Var nú alveg ákveðin að ætla ekki að halda neitt, því hvað er gaman að halda partý ef maður er óléttur og má ekki drekka og djamma almennilega. Hahah er samt aðeins að fatta að það er nú alveg hægt að skemmta sér óléttur, ekki satt???
Er annars búin að fjarlægja kerruna hennar Hrafnhildar af ganginum, er að verða frekar þreytt á þessum heitu umræðum um eld og eldhættu vegna barnavagana.....er samt alveg sannfærð um að þessir barnavagnar séu nú bara brot af því sem skapar hættuástand ef kveikna skyldi í kollegíinu........
Nennti ekki alveg að setja inn linka og svona akkurat núna, geri það bara í kvöld
|
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com