Sápan á Öresundinu........

Thursday, November 23, 2006

Hvað haldiði að hafi gerst í dag! Ég var rænd!! Fór í sakleysi mínu með Grím í barnavagninum í netto að versla í matinn. ég tók mér gula körfu og skellti henni ofan á barnavagninn og setti svo töskuna mína þar ofan í (já ég veit, kannski ekki það gáfulegasta)
Og eins og flestir vita þá er netto ekki alveg stæðsta búðin í bænum og frekar þröng. Svo þurfti ég að sækja salsasósu en þar var eitthvað bölvað bretti fyrir þannig að ég þurfti að skilja vagninn eftir við endann á ganginum, en þetta voru svona í mesta lagi 4 skref...svo ætla ég að athuga hvað ég er með mikinn pening með mér og þá var taskan bara horfin úr körfunni. Ég fattaði þetta alveg um leið en ég gat ekkert hlaupið út með barnavagninn svo glatt.

En hann græddi nú ekki mjög mikið, því ég gleymdi peningaveskinu mínu á Íslandi með öllum kortum og peningum. Lyklana hafði ég sett í vasann á úlpunni sem betur fer og hluta af peningunum sem ég hafði með voru líka í vasanum. Regnslánna af vagninum og vettlingana hafði ég sett í töskuna en svo heppilega vildi til að það fór að rigna á leiðinni þannig að ég notaði það.
Síminn hans Arnar Inga var eiginlega það eina og svona 300 kall sem hann hafði upp úr þessu.........
|

Monday, November 20, 2006

Home sweet home..........

Já þá erum við komin aftur til DK, en hvað það er alltaf gott að koma heim til sín. Hefði bara ekki getað verið óheppnari með veður á Íslandi, það var vægast sagt ógeð. Fór í mínus 15 gráður og svo fór allt á kaf í snjó í gær og það var nánast ófært í Reyjavík.
En nóg um það, vonandi get ég nú slappað svolítið af kynnst honum Grími mínum svolítið, kannksi komin tími til......
|

Wednesday, November 15, 2006

óveðurslandið mikla....

Jæja þá held ég bara að það hafi verið komin tími á færslu.....það er bara búið að vera brjálað að gera síðan Grímur fæddist í einu orði sagt. Gestagangur frá Íslandi og svo stakk ég bara af með gestunum til Íslands.

Örn er bara að læra eins og vitleysingur, er farinn eldsnemma a morgnana og kemur seint heim á kvöldin þannig að mér fannst alveg tilvalið að skreppa bara heim á klakann:) Er búinn að fá tvö alvöru óveður, þannig að allt flug hefur legið niðri og svo í dag voru mínus 5 gráður og rok.....þvílíkur vibbi, erum svo öll að kafna úr kvefi þannig að það er varla að það sé hægt að klæða veðrið af sér og fara eitthvað út.
Erum nú bara mest í rólegheitum, ekkert á of miklu flakki, Hrafnhildur er ekki alveg að höndla of mikið af heimsóknum.
Grímur bara stækkar og er komin með undirhöku og fellingar á lærin, mamman lifir í vellystingum á Íslandi og þá gerir hann það auðvitað líka:)
Komum svo til baka á mánudaginn....
|
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com