Sápan á Öresundinu........

Thursday, June 22, 2006

Í fríi er gott að vera..........

Það er alveg ótrúlegt hvað ég hef bara nóg að gera í að gera ekki neitt......
Hafði smá áhyggjur um að mér myndi leiðast í þessu langa fríi en svo er nú aldeilis ekki.

Er búin að vera límd yfir 24 núna seinustu daga. Við Örn höfðum ekki séð neitt af þessum þáttum þannig að við fengum alla fyrstu seríuna lánaða og þetta er bara nokkuð spennandi! Ég sofna reyndar alltaf yfir þessu á kvöldin, en Örn getur samt ekkert hætt að horfa þannig að á daginn þá verð ég að horfa á það sem ég missti af kvöldið áður. Þannig að ég hef ekkert voðalega mikinn tíma fyrir hversdagsleikan fyrir sjónvarpsglápi.......En ég hef svo sem ekkert betra að gera og nú eru bara fimm dagar í að við komum til Íslands:)
|

Monday, June 19, 2006

Laaaangt frí....

Jæja, ég get nú ekki alveg sagt að ég hafi verið dugleg að blogga.............hér er nú bara búið að vera mikið að gera og í dag er fyrsti dagur í að gera ekki neitt, kláraði prófin á miðvikudag og erum búin að vera með gesti síðan:)
Ef ég næ prófunum þá fer ég ekki í skólann fyrr en í septenmer á næsta ári, finnst það nú ekki mjög leiðinlegt. Komum annars til íslands eftir rúma viku og verðum í 12 daga og á þessum 12 dögum förum við í 3 brúðkaup, geri aðrir betur:) Hefði satm alveg verið til í að vera að fara í brúðkaup ekki ólétt, en það er nú ekkert við því að gera haha;)
Jæja ætla að halda áfram að njóta fyrsta dagsins í að gera ekki neitt.........
|

Saturday, June 10, 2006

gleraugnavesen.....

Jææja þá er prófið í sjúkdómafræði búið og gekk það bara bærilega, vona allavega að ég nái.

Birta frænka mín fékk hana Hrafnhildi lánaða í dag og fór með hana á ströndina og við Örn komum svo seinna í dag þannig að skvísan var á ströndinni frá klukka 11 í morgun til klukkan 7 í kvöld.......

En á meðan þær voru bara tvær, þá fór ég og keypti mér gleraugu og váááá hvað það er dýrt að vera svona næstum blindur, 7.000 krónur takk fyrir sem þetta kostaði. Bara glerinn rúmar 4.000 krónur og svo umgjörð á 3.000, það mætti halda að ég væri komin með svona gamlingja gleraugu sem eru tvískipt því þetta var svo dýrt.
En svona er þetta að vera með -5 og sjónskekkju......En ástæðan fyrir þessu er sú að gærdag var ég í kaffi hjá henni Regínu og meðan ég var að pússa gleraugun mín þá fóru þau í sundur og ég hélt á þeim í sitthvorri hendinni, þetta var allt saman voða fyndið og mikið hlegið, sérstaklega þegar ég reyndi að líma þau bara saman með límbandi, en það var ekki alveg að haldast.

Svo varð ég voða stressuð því ég átti bara 3 pör af einsdags linsum og ég er að fara í próf á mánudagin fram á miðvikudag. En ég fór í búðina í dag og konan gaf mér linsupör fram á fimmtudag, því koma linsurnar sem ég pantaði líka. Var farin að sjá fyrir mér að þurfa að teipa gömlu gleraugun saman með einhverju rosa teipi á meðan ég fer í prófið........

Vá löng færsla...
|

Thursday, June 01, 2006

Próf, próf, próf og aftur próf......

Er ekkert að blogga þessa dagana sökum próflesturs..........skrifa á miðvikudaginn:)
|
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com